2. Landskeppnin
í efnafræði
2. Almenna landskeppnin
í efnafræði fór fram þriðjudaginn 5.
nóvember 2002.
Verkefnið var nokkuð langt og tók á flestum
grunnatriðum í efnafræði. Sigurvegari keppninnar var Helga Dögg Flosadóttir
frá Menntaskólanum í Reykjavík, en alls tóku
þátt 121 nemendur frá 10 framhaldsskólum. Þátttaka eftir
skólum var eftirfarandi:
|
Skóli |
Fj.
þáttt. |
|
Menntaskólinn
í Reykjavík (MR) |
52 |
|
Menntaskólinn
við Hamrahlíð (MH) |
18 |
|
Menntaskólinn
við Sund (MS) |
13 |
|
Kvennaskólinn
í Reykjavík (KR) |
11 |
|
Verzlunarskóli
Íslands (VÍ) |
10 |
|
Menntaskólinn
á Akureyri (MA) |
6 |
|
Menntaskólinn
að Laugarvatni (ML) |
4 |
|
Menntaskólinn
á Ísafirði (MÍ) |
3 |
|
Iðnskólinn
í Reykjavík (IR) |
2 |
|
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti (FB) |
2 |
Efstu 43 keppendunum
bauðst að halda áfram í úrslitakeppnina sem fram
fór í febrúar og mars 2003. Tíu efstu keppendurnir fengu
bókaviðurkenningu.
Þessir keppendur eru:
|
Sæti |
Nafn |
Skóli |
|
1 |
Helga Dögg
Flosadóttir |
MR |
|
2 |
Berglind
Gunnarsdóttir |
MR |
|
3 |
Gunnar
Þór Pálsson |
VÍ |
|
4 |
Ólafur
Margeirsson |
MR |
|
5-6 |
Einar Bergur
Ingvarsson |
VÍ |
|
5-6 |
Ísak
Sigurjón Bragason |
MA |
|
7-8 |
Magnús
Bergur Magnússon |
MR |
|
7-8 |
Sveinn Ólafsson |
MR |
|
9 |
Elín
Ingibjörg Magnúsdóttir |
MH |
|
10 |
Anna
Kristín Þórhallsdóttir |
MA |
Úrslitakeppnin skiptist í
fræðilegan og verklegan hluta.
Alls tóku 29 nemendur þátt í
fræðilega hlutanum, sem fór fram 22. febrúar 2002, en
11 nemendur fengu að halda áfram í verklega hlutann sem
fór fram 7. mars. Myndir af
keppendum eru á heimasíðu Efnafræðifélagi
Íslands (undir Samkomur)
Lokaeinkunnin var reiknuð frá samanlögðum
árangri í fræðilega (60%) og verklega (40%)
hlutanum. Röð keppenda
var sem hér segir
Sæti |
Nafn |
Skóli |
|
1. |
Helga Dögg
Flosadóttir |
Menntaskólanum
í Reykjavík |
|
2. |
Húni
Sighvatsson |
Menntaskólanum
við Hamrahlíð |
|
3. |
Hringur
Grétarsson |
Menntaskólanum
í Reykjavík |
|
4. |
Ísak
Sigurjón Bragason |
Menntaskólanum
á Akureyri |
|
5. |
Berglind
Gunnarsdóttir |
Menntaskólanum
í Reykjavík |
|
6. |
Tinna
Baldvinsdóttir |
Menntaskólanum
í Reykjavík |
|
7. |
Gunnar Þór
Pálsson |
Verzlunarskóla
Íslands |
|
8. |
Wing Wa Yu |
Menntaskólanum
við Hamrahlí› |
|
9. |
Anna Kristín
Þórhallsd. |
Menntaskólanum
á Akureyri |
|
10. |
Margrét
Jóna Einarsd. |
Menntaskólanum
í Reykjavík |
|
11. |
Ólafur
Margeirsson |
Menntaskólanum
í Reykjavík |
Í ólympíulið
Íslands 2003 voru valin:
Húni
Sighvatsson, MH
Ísak
Sigurjón Bragason, MA
Hringur Grétarsson ákvað
að taka Þátt í ólympíukeppninni í
stærðfræði sem var í Japan í
júlí 2003.
Seinni hluta júnímánaðar var
ólympíuliðið í þjálfun við Háskóla
Íslands áður en það hélt utan í 35.
Alþjóþlegu ólympíukeppnina sem var í Aþenu, Grikklandi,
dagana 5. - 14. júlí 2003.
Með liðinu fóru einnig tveir þjálfara,
þeir Finnbogi Óskarsson og Már Björgvinsson.
Alls tóku 232
nemendur frá 59 löndum þátt í ólymíukeppninni. Keppnin var í tveimur hlutum,
eins og venjuleg, verklegum hluta sem gilti 40% og fræðilegum hluta
sem gilti 60%. Í
þetta sinn fengu 30 efstu keppendurnir gullverðlaun,
silfurverðlaun fengu keppendur í 31. - 83. sæti en keppendur
í 84.-155. sæti fengu bronsverðlaun. Auk þess fengu 44 keppendur, sem ekki unnu til
verðlauna, heiðursviðurkenningu fyrir að leysa a.m.k. eitt
verkefni óaðfinnanlega.
Sigurvegari
ólympíukeppninnar var 16 ára gamall Hvítrússi;
A. Putau, í 2. sæti var Y. Kanoria frá Indlandi en Y. Zhou
frá Kína var í 3. sæti. Putau náði einnig bestum árangri í
fræðilega hlutanum en C. Urbina frá Venesúela
fékk hæstu einkunn fyrir verklega hlutann. Þau Ísak Sigurjón,
Helga Dögg og Berglind fengu öll heiðursviðurkenningu fyrir
að leysa a.m.k. eitt verkefni fræðilega hlutans
óaðfinnanlega. Hins
vegar tókst liðinu ekki að vinna til verðlauna í
þetta sinn, en Berglind var mjög nærri því að
fá bronsverðlaun og Helga Dögg og Húni voru ekki langt
frá því heldur.
Þegar
meðaleinkunn keppenda frá hverju landi er reiknuð, lendir kínverska
liðið í efsta sæti, lið Írans í 2.
sæti og lið Kóreu í 3. sæti. Lið Íslands hafnar
hins vegar í 48. sæti sem er mun betri árangur en á
síðasta ári.
Aðeins tvö Norðurlandalið, lið Finna og Dana, fengu
hærri meðaleinkunn en íslenska liðið. Góðan árangur
íslenska liðsins má fyrst og fremst rekja til þess
að liðið stóð sig mjög vel í verklega
hlutanum. Þannig fengu
þrír keppendur í liðinu um 80% stiganna í
verklega hlutanum. Berglind
Gunnarsdóttir náði hins vegar þeim
stórglæsilega árangri að fá 93% verklegu
stiganna. Berglind náði
þar með níundu bestu verklegu einkunninni, sem var besti
árangur Norðurlandabúa og betri árangur en hjá
öllum í kínverska liðinu.
Árangur
íslenska liðisins er mikil hvatning fyrir íslenska framhaldsskólanemendur
og bendir til að þeir geti í framtíðinni unnið
til verðlauna í ólympíukeppni í
efnafræði. Á
næsta ári verður keppnin haldin í Kiel í
Þýskalandi.