1. Landskeppnin í
efnafræði 2001-2002
Fyrsta Almenna landskeppnin í
efnafræði fór fram 6. nóvember 2001. Alls tóku 116
nemendur þátt í keppninni frá 12
framhaldsskólum. Efsti
keppandinn fékk 73,0 stig af 100 sem er ágætis
árangur þar sem verkefnið var erfitt og skammur tími
var til að leysa það.
11. efstu keppendurnir fengu bókaviðurkenningu
en 46. efstu fengu að halda áfram í úrslitakeppnina
sem fram fór á vormisseri 2002.
Úrslitakeppnin skiptist í fræðilega
keppni og verklega keppni.
- Fræðilega úrslitakeppnin
fór fram 9. mars 2002 í skólum keppenda. 11. efstu keppendunum, sem voru
ekki orðnir 20. ára fyrir 1. júlí 2002, fengu að
halda áfram í verklegu úrslitakeppnina.
-Verklega úrslitakeppnin fór fram í
Háskóla Íslands 7. apríl og samanstóð
hún af tveimur verklegum æfingum.
Myndir frá verklegu keppninni má finna hér
Í lokaeinkunn var vægi fræðilega hlutans
60% en veklega hlutans 40%. Röð keppenda var eftirfarandi
Sæti |
Nafn |
Skóli |
|
1. |
Erlendur Jónsson |
Menntaskólanum í
Kópavogi |
|
2. |
Kristján Alexandersson |
Menntaskólanum á
Akureyri |
|
3. |
Helga Dögg
Flosadóttir |
Menntaskólanum í
Reykjavík |
|
4. |
Gunnar Þorgilsson |
Menntaskólanum á
Akureyri |
|
5. |
Lydía Ósk
Ómarsdóttir |
Menntaskólanum í
Reykjavík |
|
6. |
Húni Sighvatsson |
Menntaskólanum við
Hamrahlíð |
|
7. |
Hálfdán
Pétursson |
Menntaskólanum á
Akureyri |
|
8. |
Anna Kristín Þórhallsd. |
Menntaskólanum á
Akureyri |
|
9. |
Anna Guðmundsdóttir |
Kvennaskólanum í
Reykjavík |
|
10. |
Jens Guðjónsson |
Menntaskólanum við
Hamrahlíð |
|
11. |
Simundur Kornelíusson |
Menntaskólanum í
Reykjavík |
Verðlaun voru veitt fyrir fjögur efstu sætin:
Myndir frá verðlaunaafhendingu Landskeppninnar má finna hér
Í ólympíulið Íslands 2002 voru
valin
Erlendur
Jónsson, MK
Helga
Dögg Flosadóttir, MR
Lydía
Ósk Ómarsdóttir, MR
Húni
Sighvatsson, MH
Þeir Kristján Alexandersson og Gunnar Þorgilsson
ákváðu að taka þátt í ólympíukeppninni
í eðlisfræði í júlí 2002.
Dagana 18. júní til 1. júlí var Ólympíuliðið í þjálfun við Háskóla Íslands. Á morgnana var farið í fræðileg efnisatriði en eftir hádegi fékk liðið að spreyta sig á verkelgum æfingum eða farið var í æfingadæmi.
- “Lærimeistararnir”
(mentors) Már Björgvinsson og Skarphéðinn P.
Óskarsson fóru með ólympíuliði
Íslands til Hollands.
Einnig fóru með liðinu 7 mánaða gamall sonur Helgu Daggar, Gabríel, og
systir hennar Aðalheiður, en hún fór með sem
barnagætir.
-
225 keppendur frá
57 löndum mættu til keppni í Hollandi
-
Sigurvegari 34.
Ólympíukeppninnar var Y. Zhu frá Kína, í 2.
sæti var landi hans H. Lu en S. Kumar frá Indalandi var í
3. sæti.
-
Y. Zhu leysti fræðilega
vekefnið best keppenda en S. Kumar náði
hins vegar bestum árangri við verklegu æfingarnar.
-
Bestum árangri
kvenna í keppninni náði C. Y. Lin
frá Tævan (13. sæti).
-
Kínverska
sveitin var ótvíræður sigurvegari keppninnar þar
sem þeirra liðsmenn voru í 1., 2., 5. og 6. sæti.
-
Efstur
Evrópubúa var M. Kalek frá Póllandi í 4.
sæti
-
Norðmaðurinn
K. Vestli var efstur Norðulandabúa í 24. sæti.
-
Allar norðulandaþjóðirnar
unnu til verðlauna nema Íslendingar:
Finnar fengu eitt silfur og
tvö brons,
Danir 1 silfur og eitt brons,
Norðmenn eitt gull
Svíar eitt brons.
-
Erlendur og
Húni fengu heiðursviðurkenningu fyrir að leysa eitt
dæmi óaðfinnanlega.
-
Nánar
um IChO34 í Hollandi má finna hér
Árangur íslenska liðsins í keppninni er viðunandi ef haft er í huga að þetta er í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt. Hins vegar má ætla að með meiri reynslu við undirbúning og þjálfun liðsins geti árangur íslendinga orðið betri í framtíðinni og þeir jafnvel unnið til verðlauna. Til að vinna til verðlauna þarf að leysa a.m.k. 60% verkefnanna. Ættu áhugasamir íslenskir nemendur að geta náð þessu marki rétt eins og aðrir nemendur á hinum norðulöndunum ekki hvað síst ef þeir geta æfa sig sjálfir vel um veturinn fyrir alþjóðlegu keppnina.