Bergsegulmælingar
Eyjafjörður-Skagafjörður
Á árunum
1995-99 var safnað sýnum til bergsegulmælinga úr 320 hraunlögum í Eyjafjarðardal
og afdölum hans til vesturs. Um er að ræða 3 km þykkan jarðlagastafla, 5-9
milljón ára gamlan. Samstarf var við Ágúst Guðmundsson hjá Jarðfræðistofunni
ehf. og fleiri. Grein um niðurstöðurnar birtist í tímaritinu International
Journal of Earth Sciences 2004. Svipaðar rannsóknir voru síðan gerðar í inndölum
Skagafjarðar á árunum 2002-04 og safnað sýnum úr um 250 hraunum (tæplega 2 km að
heildarþykkt) í samstarfi við Ágúst og Árna Hjartarson á Ísor. Grein um þær er
nýkomin út í Jökli 56.
Fljótsdalur
Grein um
jarðlög Suðurdals og segulmælingar á sýnum úr 76 hraunlögum, rituð í samstarfi
við Ágúst Guðmundsson, birtist í Jökli 55 um áramót 2005-06.
Vestfirðir
Á
síðastliðnum þrem sumrum (2004-06) hefur verið safnað sýnum úr 260 hraunlögum á
svæðinu milli Arnarfjarðar og Breiðafjarðar, til bergsegulmælinga. Þessar
rannsóknir eru í framhaldi af öðrum sem ritsmíðar birtust um 1975 og 1984. Grein
verður væntanlega rituð um niðurstöðurnar eftir frekari sýnasöfnun og mælingar
2007.
Suðurskautslandið
Í samstarfi
við Magnús Tuma Guðmundsson og erlenda vísindamenn voru gerðar
segulstefnumælingar á 17 hraunlögum frá Suðurskauts-skaganum. Niðurstöður
birtust í grein í tímaritinu Antarctic Science 2005.
Mars
Haraldur P.
Gunnlaugsson við Árósaháskóla og samstarfsmenn hans hafa gert samanburð á
tilteknum seguleiginleikum bergs á plánetunni Mars og olivinbasalts frá Íslandi.
Tvær greinar þar sem L.K. er meðhöfundur, hafa birst 2005-06.
Suðurland
Síðastliðið
haust var byrjað á litlu verkefni í bergsegulmælingum á hraunlagasniði við
Kjósarskarðsveg, um 2 milljón ára. Niðurstöður úr því sniði og úr rannsókn á
álíka gömlum jarðlögum í sniði í Þjórsárdal verða birtar 2007-08.
Samantektir
Nýlega hefur
birst grein með samantekt ýmissa niðurstaðna um bergsegulmagn og
flugsegulmælingar á Íslandi, í samstarfi við Geirfinn Jónsson jarðeðlisfræðing.
Greinin er í sérstöku hefti af tímaritinu Journal of Geodynamics ásamt nokkrum
öðrum varðandi Ísland.
Af fyrri greinum L.K. um þetta efni má nefna eina í tímaritinu Physics and Chemistry of the Earth 2002. Erindi hafa einnig verið flutt m.a. á þingi American Geophysical Union í San Francisco í des. 2004 og á þingi Internat. Assoc. Geomag. Aeronomy 2005. Grein um breytileika segulstefna innan hraunlaga, rituð ásamt Haraldi Auðunssyni við Háskólann í Reykjavík, hefur birst í vef útgáfu íslenska ritsins Raust.
Um sögu kennslu og rannsókna í raunvísindum á Íslandi
Á heimasíðunni eru nýlegar eða ný-endurskoðaðar ritsmíðar varðandi m.a.:
- Sögu
eðlisfræðikennslu í grunnskólum á Íslandi, til 1995
- Útgáfu bóka um eðlisfræði á Íslandi, til um 1970
- Ritskrár Þorbjörns Sigurgeirssonar og Trausta Einarssonar, ásamt æviágripi
þess fyrrnefnda
- Ritstörf George P.L. Walkers og samstarfsmanna, til um 1980
- Leiðangra þýskra jarðvísindamanna til Íslands, 1819-1970
- Ævi Frímanns B. Arngrímssonar raffræðings
- Sögu rannsókna á steindum (einkum geislasteinum) í íslensku bergi, og
nafngiftir
- Fjóra norðurljósaleiðangra til Íslands, 1883-1910
- Rannsóknir á og með silfurbergi úr Helgustaðanámunni, einkum á 19. öld
Um síðastnefnda atriðið hafa verið ritaðar nokkrar greinar, og endurútgáfa fjölritaðrar skýrslu frá 2001 um málefni silfurbergsins er í undirbúningi.