|
Lífshlaup |
| Leó Kristjánsson Desember 2010 |
Uppruni, fjölskylda Fæddur á Ísafirði 26. júlí 1943. Kvæntur Elínu Ólafsdóttur, lækni. Börn: Kristján (f. 1970), doktor í rafmagnsverkfræði frá DTU, starfar hjá Raunvísindastofnun Háskólans, og Margrét (f. 1975) læknir í framhaldsnámi í Malmö í Svíþjóð. |
|
|
Helstu störf
Settur kennari við M.A. skólaárið 1967-68. Sérfræðingur
við Raunvísindastofnun Háskólans 1968-69 og frá hausti 1971. Fastráðinn
1974, fræðimaður frá 1987, vísindamaður frá 1994. Í leyfi úr þeirri
stöðu og settur dósent í jarðeðlisfræði við H.Í. vormisserin 1975 og
1983. Ráðinn prófessor í jarðeðlisfræði við raunvísindadeild H.Í.
1991-94 og í 16 mánuði alls á árunum 1996-98. Annars stundakennari við
VRD í H.Í. frá 1971. |
Helstu rannsóknasvið, í áhersluröð 1. Bergsegulmælingar (paleomagnetism) á Íslandi og túlkun þeirra, bæði í jarðfræðilegu augnamiði og út frá breytingum jarðsegulsviðsins síðustu 15 milljón ár. 2. Segulsviðsmælingar (magnetic surveys) á Íslandi og landgrunninu, úrvinnsla þeirra og jarðfræðileg túlkun. 3. Saga rannsókna á íslenskum
steindum og bergtegundum erlendis, einkum hvað varðar silfurberg og
notkun þess í vísindatæki. Saga rannsókna, útgáfu og kennslu varðandi
jarðvísindi og fleiri raungreinar á Íslandi. Höfundur eða meðhöfundur um
90
vísindagreina í ritrýndum tímaritum á alþjóðavettvangi. Höfundur eða
meðhöfundur fjölmargra erinda á ráðstefnum, alþýðlegra greina,
fjölritaðra skýrsla, ritdóma, ritskráa, greina um kennslumál o.fl.
Fjöldi meðhöfunda er alls um 100, frá 10 löndum. Allmargir styrkir frá Vísindasjóði,
Rannsóknasjóði H.Í. og (ásamt öðrum) U.S. National Science Foundation.
Tækjastyrkir frá Alexander von Humboldt Stiftung, U.S. National Academy
of Sciences, og Tækjasjóði H.Í. Styrkir frá Hitaveitu Reykjavíkur 1985
og 1993 og Vegagerð Ríkisins 1989-90 vegna tiltekinna rannsóknaverkefna.
Ferða- og dvalarstyrkir frá Alexander von Humboldt Stiftung (6 mán.,
München 1976), Fulbright Foundation (3 mán., Corvallis 1983),
Independence Foundation (6 vikur, Bandaríkin 1989), University of Tokyo
(2 vikur, Japan 1994), og Alþingi (3 mán., Kaupmannahöfn 2000). M.a. American Geophysical Union frá 1970 (heiðraður með útnefningunni “Fellow” 2002). Jarðfræðafélag Íslands frá 1972, í stjórn þess 1973-75. Eðlisfræðifélag Íslands frá stofnun 1977. Kjörfélagi í Vísindafélagi Íslendinga frá 1976, í stjórn þess 1976-78. Í stjórn Félags Háskólakennara 1986-88, varastjórn og samninganefnd 1992-94. |
Nefnda- og stjórnunarstörf Sá ásamt öðrum um ráðstefnuna “Geodynamics of Iceland and the North Atlantic Area” í Reykjavík 1974, og um innlendar ráðstefnur Jarðfræðafélagsins 1972 og 1977. Í samstarfsnefnd Rannsóknaráðs Ríkisins um landgrunnsrannsóknir 1972-77. Forstöðumaður jarðeðlisfræðideildar Raunvísindastofnunar Háskólans, síðar jarðeðlisfræðistofu, 1978-83 og sept. 1995- jan. 2000, varaforstöðumaður 2000-03. Í úthlutunarnefnd ferðastyrkja (Research Grants Panel) hjá NATO Science Committee árin 1980-82. Í Evrópu-samstarfsnefnd (ESCO) vegna Ocean Drilling Program 1986-90. Í Vísindaráði (Náttúruvísindadeild) 1991-94. Fulltrúi Íslands í Vísinda- og tækniþróunarnefnd ESB (CODEST/ESTA) 1992-94. Skorarformaður í eðlisfræðiskor raunvísindadeildar H.Í. skólaárið 1992-93, varaformaður 1991-92 og 1993-94, einnig aðjúnkt við þá skor lengst af 1973-87 og öðru hvoru síðar. Í kjörstjórn um rektorskjör í H.Í. 1997 og 2005. Í úthlutunarnefnd Vísindasjóðs 2003, og varamaður í stjórn Rannsóknasjóðs Vísinda-og Tækniráðs 2003-06. Í Vísindanefnd raunvísindadeildar H.Í. 2007-08. Í stjórn Eggertssjóðs 2007-10. Í mörgum dómnefndum um stöðuráðningar og framgang, einkum sérfræðinga og kennara við H.Í., gegnum tíðina. |
Helstu ritstjórnarstörf Í ritnefnd Týlis 1971-78. Ritstýrði ráðstefnubók “Geodynamics of Iceland and the North Atlantic Area” (D. Reidel Publ. Co.) 1974. Ritstýrði Rannsóknaskrá Verkfræði- og raunvísindadeildar H.Í. 1977-78. Einn þriggja ritstjóra Jökuls 1980-85, 1991-94 og 2010-11, í ritnefnd þess rits samfellt frá 1994. Ritstýrði kynningarheftum um Raunvísindastofnun 1986 (með öðrum) og 1991. Ritstýrði fjölrituðum ráðstefnuheftum Eðlisfræðifélags Ísl. 1985 og (með öðrum) 1991. Ritstýrði (með öðrum) sérhefti af tímaritinu Physics of the Earth and Planetary Interiors 1989. |
|
|
Önnur kennsla o.fl. Kenndi stærðfræði og náttúrufræði
við M.A. 1967-68. Stundakennari í eðlisfræði við Newcastle-háskóla
1966-67 og Memorial-háskóla 1969-71, í stjörnufræði við M.R. 1968-69, og
í eðlisfræði við T.Í. 1972-73. Prófdómari á stúdentsprófi í M.T./M.S.,
og í prófum við T.Í./T.H.Í. í nokkur skipti. Tók nokkrum sinnum þátt í
framkvæmd landskeppni framhaldsskólanema í eðlisfræði, sem og í þjálfun
íslenskra keppenda fyrir Olympiuleika í eðlisfræði; samdi með öðrum eitt
þriggja fræðilegra verkefna í þeim Olympiuleikum þegar þeir voru haldnir
í Reykjavík 1998. Ýmis ritstörf um kennsluefni í eðlisfræði. |