Velkomin á þessa upplýsingasíðu fyrir 35. Ólympíuleikana í eðlisfræði sem haldnir verða í Pohang í Suður-Kóreu í júlí 2004. Hér má finna upplýsingar um eftirfarandi:
Í liðinu eru fimm keppendur, fjórir frá Akureyri og einn úr MR. Auk þeirra fara með tveir dómnefndarfulltrúar sem jafnframt eru þjálfarar liðsins og fararstjórar.
Þjálfun miðast við alþjóðlega syllabusinn sem er fáanlegur hér. Stuðst verður við kennslubókina University Physics eftir Harris Benson. Þessi bók hefur verið kennd á fyrsta ári í Háskólanum undanfarin ár en verður sennilega ekki notuð áfram. Keppendur ættu því ekki að kaupa sér bókina heldur reyna að fá hana lánaða hjá eldri nemendum. Ef það gengur illa geta þjálfarar hjálpað til við að finna lánsbækur.
Þjálfuninni verður skipt í tvo hluta, nefnilega fjarnám og formlega þjálfun í Háskóla Íslands.
Hafið samband við Kristján <kristk@hi.is> ef það vakna spurningar um þjálfunina eða varpið spurningunum fram á spjallinu.
Keppnin verður haldin í Pohang í Suður-Kóreu 15.-23. júlí 2004, sjá heimasíðu keppninnar.
Ekki má gleyma að hafa með: Vegabréf. Spariföt. Reiknivél og eðlisfræðigögn. Vörn gegn sól og flugum.
Við förum saman í leigubíl út á flugvöll og fer bíllinn úr Vesturbænum í Reykjavík klukkan 5:00 að morgni mánudagsins 12.júlí. Áfangastaðir hans verða: Frostaskjól 77- Holtsgata 14- Hjarðarhagi 28- Eggertsgata 18- Funafold 52 og loks Byggðarholt 15 í Mosfellsbæ. Ekki er enn ljóst hvernig greitt verður úr bílastæðismálum eins keppandans en það verður vonandi komið á hreint fljótlega!
Þar sem leigubílstjórinn býr í Grafarvogi verður röðinni breytt þannig:
Tíminn getur hliðrast eitthvað en nauðsynlegt er að vera tilbúinn þegar bíllinn kemur.
Flogið verður 12. júlí kl 7:45 til London og lent þar um hádegi. Flugið til Kóreu er klukkan 21:30 um kvöldið þannig að hugsanlega gætum við farið í bæinn að skoða Vísindasafnið.
Við millilendum í Seoul en förum síðan til Busan (eða Pusan) og komum þangað um klukkan 21 að staðartíma 13. júlí.
Hér er hægt að sjá dagskrána fyrir Ólympíuleikana í Pohang.
Þegar við förum heim er ekki eins mikil bið. Við leggjum af stað 10:35 um morguninn og komum til Heathrow um klukkan 17 sama dag og fljúgum af stað til Íslands um klukkan 21.
Við komum heim klukkan 23:10 föstudaginn 23.júlí með FI-453 frá London.
Hafið samband við Ingibjörgu <inghar@ismennt.is> ef það vakna spurningar um ferðina eða varpið þeim fram á spjallinu.