Raunvísindastofnun Háskólans
Háloftadeild
Með starfsaðstöðu: Dr. Þorsteinn
Sæmundsson
Háloftadeild Jarðeðlisfræðistofu rekur segulmælingastöð
í Leirvogi í Mosfellssveit. Stöðinni var komið
á fót árið 1957 og er hún hin eina sinnar
tegundar hér á landi. Þar eru skráðar breytingar
á segulsviði jarðar, bæði skammtímabreytingar
af völdum rafagnastrauma frá sólu og hægfara breytingar
sem stafa af hræringum í kjarna jarðar. Breytingarnar
hafa meðal annars áhrif á stefnu áttavitanála,
og langtímamælingar í Leirvogi eru því
notaðar til að leiðrétta kort fyrir siglingar og flug. Niðurstöður mælinga sem skráðar eru á
10 sekúndna fresti eru sendar daglega til gagnamiðstöðvar
í Kyoto í Japan og mánaðarlega til Boulder í
Colorado.
Háloftadeildin sér einnig um rekstur tveggja stöðva
til norðurljósarannsókna, en stöðvarnar eru
í eigu Pólrannsóknastofnunar Japans. Önnur þeirra
er á Augastöðum í Borgarfirði (nálægt
Húsafelli), og hin er á Mánárbakka á
Tjörnesi. Stöðvum þessum var komið upp 1983, en
tækjabúnaður þeirra er í stöðugri
þróun. Hið sama er að segja um segulmælingastöðina
í Leirvogi.
Þá sér Háloftadeildin um rekstur tveggja ratsjárstöðva til rannsókna
á rafhvolfi jarðar. Önnur þeirra er við Stokkseyri en hin við Þykkvabæ.
Fyrrnefnda stöðin er í eigu franskra
rannsóknastofnana en sú síðarnefnda er í eigu háskólans í Leicester í
Englandi. Þessar stöðvar eru mikilvægur hlekkur í keðju slíkra stöðva
sem nær bæði til norður- og suðurhvels jarðar. Markmiðið með keðjunni
er að kortleggja áhrif sólar á rafhvolfið. Stöðvarnar hér á landi hafa
verið starfræktar í nær tvo áratugi.
Segulmælingastöðin í
Leirvogi
Leirvogur Magnetic Observatory
Almanak Háskólans er reiknað
og búið til prentunar við Háloftadeild.
|