IPhO 2006

Ólympíuleikarnir í eðlisfræði 2006

Þetta er upplýsingasíða fyrir 37. ólympíuleikana í eðlisfræði sem fram fara í Singapore 8. - 17. júlí 2006. Hér má finna upplýsingar um:

liðið | æfingaáætlun | kennara | ferðalagið

Liðið

Liðið er eins og alltaf samansett af völdum nemendum úr framhalds- og menntaskólum landsins. Að þessu sinni eru allir liðsmenn úr Menntaskólanum í Reykjavík (MR).

Liðið

Efri röð frá vinstri: Tómas og Einar.
Neðri röð frá vinstri: Kjartan, Þórey og Freyr.

Auk eiginlegra keppenda eru tveir fararstjórar sem sjá um að koma keppninni yfir á okkar ástkæra ylhýra og sjá um að sanngirni verði viðhöfð við yfirferð úrlausna okkar keppenda. Einnig halda þeir utan um skipulagningu þessarar ferðar.

Drög að æfingaáætlun

Þjálfunin fer fram í VR-I í stofu 110 og er námsefnið miðað við syllabusinn og University physics eftir Benson notuð til viðmiðunar. Gert er ráð fyrir að nemendur mæti 8:00 á morgnana og séu að til 16:00 með eðlilegum kaffihléum (2 x 15 mín) og klukkutíma matarhléi.

Þjálfun

Hér má sjá mynd af Guðlaugi halda fyrsta fyrirlesturinn.

Viðmiðið er að hafa tvo fyrirlestra á viku og hef ég valið efnið eftir minni vitneskju um þekkingu nemenda, þ.e. aðeins eru haldnir eiginlegir fyrirlestrar um nýtt efni. Meginhluti tímans mun svo fara í að reikna dæmi, bæði úr Benson og líka verða sett fyrir valin dæmi úr gömlum keppnum. Verklegar æfingar verða svo allavegana einu sinni í viku. Dæmaskammtar verða settir fyrir á hverjum degi og skal hafa það til viðmiðunar við val á dæmum til að reikna.

1. vika (29. maí - 2. júní)

Fyrir hádegi Eftir hádegi
Mánudagurinn 29. maí Þjálfunaráætlunin kynnt og fyrirlestur um góða uppsetningu lausna (Gulli)
Þriðjudagurinn 30. maí Dæmareikningur 1.-9. kafli Dæmareikningur 1.-9. kafli (Gulli)
Miðvikudagurinn 31. maí Fyrirlestur um stjarfa hluti, 10.-12. kafli (Þorsteinn) Dæmareikningur 10.-12. kafli (Pétur)
Fimmtudagurinn 1. júní Fyrirlestur um stjarfa hluti, 10.-12. kafli (Þorsteinn) Dæmareikningur 10.-12. kafli (Pétur)
Föstudagurinn 2. júní Reiknuð dæmi úr gömlum ólympíukeppnum Farið yfir keppnina sem var reiknuð fyrir hádegi (Gulli)

2. vika (6. júní - 9. júní)

Fyrir hádegi Eftir hádegi
Þriðjudagurinn 6. júní Fyrirlestur um sveiflur og bylgjur 15.-17. kafli (---) Dæmareikningur 15.-17. kafli (Wing Wa)
Miðvikudagurinn 7. júní Fyrirlestur um þyngdarfræði, 13. kafli (Gulli) Dæmareikningur 13. kafli (Wing Wa)
Fimmtudagurinn 8. júní Fyrirlestur um varmafræði, 14.-21. kafli (---) Dæmareikningur 14.-21. kafli (Haukur)
Föstudagurinn 9. júní Gamalt próf Dæmareikningur 14.-21. kafli (Haukur)

3. vika (12. júní - 16. júní)

Fyrir hádegi Eftir hádegi
Mánudagurinn 12. júní Fyrirlestur um rafstöðufræði 22.-26. kafli (Leó) Dæmareikningur 22.-26. kafli (Sigurður)
Þriðjudagurinn 13. júní Fyrirlestur um rafstöðufræði 22.-26. kafli (Leó) Dæmareikningur 22.-26. kafli (Sigurður)
Miðvikudagurinn 14. júní Fyrirlestur um rafrásir, 27.-33. kafli (Gunnar) Dæmareikningur 27.-33. kafli ()
Fimmtudagurinn 15. júní Fyrirlestur um rafrásir, 27.-33. kafli (Erling) Dæmareikningur 27.-33. kafli ()
Föstudagurinn 16. júní Dæmareikningur Doktorsvörn hjá Guðlaugi

4. vika (19. júní - 23. júní)

Fyrir hádegi Eftir hádegi
Mánudagurinn 19. júní Dæmareikningur Tilraun (Ari)
Þriðjudagurinn 20. júní Fyrirlestur um afstæðiskenninguna 39. kafli (Gulli) Dæmareikningur 39. kafli (???)
Miðvikudagurinn 21. júní Gamalt próf Yfirferð (Gulli)
Fimmtudagurinn 22. júní Fyrirlestur um ljósfræði, 35.-37. kafli (Kristján) Dæmareikningur 35.-37. kafli (Pétur)
Föstudagurinn 23. júní Fyrirlestur um ljósfræði, 35.-37. kafli (Kristján) Dæmareikningur 35.-37. kafli (Pétur)

5. vika (26. júní - 30. júní)

Fyrir hádegi Eftir hádegi
Mánudagurinn 26. júní Fyrirlestur um varmafræði, 18.-21. kafli (Viðar) Dæmareikningur 18.-21. kafli
Þriðjudagurinn 27. júní Fyrirlestur um varmafræði, 18.-21. kafli (Viðar) Dæmareikningur 39. kafli (???)
Miðvikudagurinn 28. júní Fyrirlestur um skammtafræði 40.-41. kafli (Þórður) Dæmareikningur 40.-41. kafli (Sigurður Örn)
Fimmtudagurinn 29. júní Fyrirlestur um kjarneðlisfræði 42.-43. kafli (Þórður) Dæmareikningur 42.-43. kafli (Sigurður Örn)
Föstudagurinn 30. júní Gamalt próf Yfirferð (Gulli)

Kennarar

Eins og oft áður koma margir sjálfboðaliðar að þjálfun hópsins. Þjálfunin væri ekki möguleg án þeirra og eiga þeir skilið miklar þakkir.

Ferðalagið

Guðlaugur Jóhannesson hefur umsjón með þessum vef. Síðast breytt 1. júní 2006