Stærðfræði á Íslandi 2005
Ráðstefna Íslenska stærðfræðafélagsins í Vestmannaeyjum
29. og 30. október, 2005
Eins og árin 2001 og 2003 hélt Íslenska stærðfræðafélagið ráðstefnu um stærðfræði á
Íslandi haustið 2005. Í þetta sinn var ráðstefnan haldin í Vestmannaeyjum
dagana 29. og 30. október. Þáttakendur voru samtals 44 og voru á ráðstefnunni
flutt 14 erindi um
heimfærða stærðfræði, stærðfræði í skólunum og hreina stærðfræði. Auk þess nutu ráðstefnugestir
gestrisni Eyjamanna á ýmsa lund. Dagskrána má sjá á
sérstakri síðu og ennfremur má nálgast slæður
úr nokkrum erindum á
annarri síðu.
Um ráðstefnurnar
Íslenska stærðfræðafélagið heldur ráðstefnurnar
Stærðfræði á Íslandi og eru þær
haldnar að hausti til á oddatöluárum. Fyrsta ráðstefnan var haldin í Reykholti í Borgarfirði
í október 2001, sú næsta á Akureyri í lok ágúst 2003 og sú þriðja í Vestmannaeyjum í lok október 2005.
Tilgangurinn með ráðstefnunum er að efla tengsl íslenskra stærðfræðinga og veita þeim tækifæri
til að kynna vinnu sína og áhugamál hver fyrir öðrum. Efni ráðstefnanna er engan veginn
einskorðað við rannsóknir í stærðfræði, heldur er þeim ætlað að fjalla um allt það sem
íslenskir stærðfræðingar fást við.
Síðunni var síðast breytt þann 13. nóvember, 2005.