Fjórða almenna landskeppnin í efnafræði fór fram miðvikudaginn 9. febrúar 2005 kl. 8:00-10:00. Alls tóku 85 nemendur þátt, úr átta framhaldsskólum. Sigurvegari keppninnar í ár var Tomasz Halldór Pajdak úr Menntaskólanum í Reykjavík en Arnar Þór Stefánsson úr Menntaskólanum á Akureyri fylgdi honum fast eftir.
Röð efstu keppenda er eftirfarandi:
Þessum þrettán nemendum er hér með boðið að taka þátt í úrslitakeppni efnafræðikeppninnar sem mun fara fram við Háskóla Íslands dagana 26. og 27. febrúar næstkomandi. Þeir munu einnig hljóta bókarverðlaun. Öðrum keppendum er þökkuð þátttakan.
Úrslitakeppnin skiptist í fræðilega keppni og verklega keppni og fór hvor tveggja fram við Háskóla Íslands helgina 26.-27. febrúar 2005.
Tólf keppendur mættu til keppninnar.
Fræðilegi hlutinn fór fram í VR-II laugardaginn 26. febrúar kl. 10:00-13:00.
Verklegi hlutinn fór fram í VR-I sunnudaginn 27. febrúar kl. 10:15-14:00. Sjá myndir úr verklegu keppninni.
Röð keppenda var eftirfarandi:
Vægi fræðilega hlutans í lokastigafjöldanum er 60% en þess verklega 40%.
Arnar Þór Stefánsson úr Menntaskólanum á Akureyri stóð sig best í fræðilega hlutanum en Tomasz Halldór Pajdak og Jakob Tómas Bullerjahn voru hnífjafnir með besta árangur í verklega hlutanum.
Verðlaunaafhending fyrir efnafræðikeppnina fer fram í Skólabæ við Suðurgötu fimmtudaginn 23. júní kl. 17:00.
Í Ólympíulið Íslands 2005 voru valin:
Jakob Tómas Bullerjahn verður orðinn tvítugur í sumar og kemst því ekki með. Inga Steinunn Helgadóttir ákvað að taka heldur þátt í Ólympíukeppninni í stærðfræði og Þórey María Maríusdóttir tekur þátt í Ólympíukeppninni í eðlisfræði.
Að lokinni tveggja vikna þjálfun við Háskóla Íslands hélt Ólympíuliðið til Taívan, með viðkomu í London og Singapúr. Auk keppendanna fjögurra fóru tveir þjálfarar með í Ólympíukeppnina, þeir Finnbogi Óskarsson og Gísli Hólmar Jóhannesson sem önnuðust þýðingu prófverkefnanna á íslensku og yfirferð úrlausna keppendanna.
Í ár tóku 225 keppendur frá 59 löndum þátt í keppninni. Sigurvegari keppninnar var Alexey Zeifman frá Rússlandi, hann sigraði keppnina líka í fyrra. Í öðru sæti ekki langt á eftir var Jesada Temaismithi frá Tælandi og í þriðja sæti var Anton Repko frá Slóvakíu. Í fræðilega hlutanum náði bestum árangri Senan Eminov frá Azerbaídsjan sem hafnaði í 22. sæti og í verklega hlutanum stóð Maximilian Tromayer frá Austurríki sig best en hann lenti í 47. sæti.
Árangur íslenska liðsins í ár var svipaður og verið hefur hingað til; enginn kom heim með verðlaunapening en keppendurnir stóðu sig að meðaltali svipað og lið Norðmanna og Svía. Hinir síðarnefndu náðu þó einum bronsverðlaunum. Danir og Finnar stóðu sig heldur betur líkt og undanfarin ár. Danir náðu þremur bronspeningum og Finnarnir lönduðu tveimur bronspeningum. Besta árangur íslenska liðsins átti Tomasz Halldór. Tomasz Halldór stóð sig best Íslendinganna í fræðilega hluta keppninnar en Arnar Þór varð hlutskarpastur í verklega hlutanum.
Það setti svip sinn á keppnina að fellibylurinn Haitang skall á eyjunni við upphaf hennar. Fellibylurinn var einn sá stærsti á þessum áratug, en Taívan fær yfir sig einn til tvo fellibylja á hverju ári. Það fylgdi þessu mikil spenna og ekki síst hjá Íslendingunum sem vildu endilega kynnast alvöru fellibyl. Þegar til kom fór fellibylurinn að mestu yfir eyjuna fyrir sunnan Taípei og það varð mjög lítið úr honum á keppnisstaðnum. Þetta voru að sjálfsögðu ákveðin vonbrigði fyrir veðurbarða Íslendinga. Þetta þýddi þó að það rigndi meira og minna allan keppnistímann, sem minnti mjög á ættjörðina nema að hitastigið var um og yfir 20 gráðum. Ókosturinn var að skoðanaferðirnar voru mjög votar. Í lokin stytti upp og hægt var að njóta veðurblíðunnar í þrjá daga áður en haldið var heim á leið.