Eðlisfræði 1 V/R


09.21.11 Eðlisfræði 1 V og 09.21.12 Eðlisfræði 1 R

Haustmisseri 2003


Kennsla hefst með fyrirlestri miðvikudaginn 27. ágúst kl. 8:00.


Markmið: Að kynna nemendum aðferðir og grundvallarlögmál aflfræði, bylgjufræði og varmafræði til þeirrar hlítar að þeir geti beitt þeim við lausn dæma. Námskeiðinu er ætlað m.a. að vera undirstaða í þessum greinum fyrir frekara nám í raunvísindum og verkfræði.

***

Skipulag kennslu: Námskeiðið skiptist í þrjá hluta sem kenndir eru samhliða. Þeir eru:

Fyrirlestrar: Fyrirlesari er Einar H. Guðmundsson.
Fyrirlestrar eru tvisvar í viku, á miðvikudögum og föstudögum. Mæting er frjáls. Áætlun og frekari upplýsingar eru á sérstakri vefsíðu: Fyrirlestrar.

Dæmatímar: Dæmakennari er Vésteinn Rúni Eiríksson sem jafnframt hefur umsjón með yfirferð heimadæma. Tölvupóstföng hans eru: vre@hi.is og vre@mh.is.
Hver nemandi mætir einu sinni í dæmatíma í viku hverri, annað hvort á þriðjudögum eða miðvikudögum, að eigin vali. Dæmaskammtar verða birtir með viku fyrirvara á sérstakri vefsíðu: Dæmablöð. Heimadæmum þarf að skila fyrir hádegi á föstudögum.
Frá og með 18. september verður boðið uppá sérstaka dæmavakt fyrir nemendur. Vaktin verður á miðvikudögum og fimmtudögum í stofu V-147 í VRII kl. 12:30-14:00. Á hverri vakt verður einn vaktmaður, sem nemendur geta rætt óformlega við um allt það sem snýr að námskeiðinu, en þó sérstaklega um dæmi og dæmareikning. Athugið að um ráðgjöf er að ræða, en ekki kennslu í venjulegum skilningi. Vaktmenn munu því ekki leysa dæmi fyrir nemendur heldur aðstoða þá við að skilja dæmin og finna leiðir til lausna.

Verklegar æfingar: Áhersla er lögð á það að kynna nemendum mælitækni og úrvinnslu gagna. Viðfangsefnin eru einkum sótt í aflfræði. Yfirumsjón með verklegum æfingum hefur Magnús Tumi Guðmundsson.
Allar nánari upplýsingar eru á sérstakri vefsíðu: Verklegar æfingar, en að auki verður sérstök kynning á verklega hlutanum í fyrirlestratíma miðvikudaginn 3. september kl. 8:00.

Að auki þurfa nemendur í raunvísindadeild að sækja Kynningu á eðlisfræði í rannsóknum einu sinni í viku, á föstudögum. Áhugasamir verkfræðinemar eru einnig velkomnir.

***

Námsefni: Hugtök, einingar, tölur, víddir. Vigrar. Hreyfilýsing. Hreyfifræði agna, tregða, kraftar og lögmál Newtons. Núningur. Vinna og orka og varðveisla orkunnar. Skriðþungi, árekstrar. Agnakerfi, massamiðja. Snúningur stjarfhlutar. Hverfiþungi og hverfitregða. Stöðufræði. Þyngd. Storka og straumefni, jafna Bernoullis. Sveiflur: Hreinar, deyfðar og þvingaðar. Bylgjur. Hljóð. Hiti. Kjörgas. Varmi og fyrsta lögmál varmafræðinnar. Kvikfræði gasa. Óreiða og annað lögmál varmafræðinnar.

Kennslubækur:
1. Harris Benson: University Physics. Wiley 1996. Fæst í Bóksölu stúdenta. Verður einnig notuð í Eðlisfræði 2 á vormisseri.
2. Þorsteinn Vilhjálmsson og fleiri: Fylgikver um Eðlisfræði 1. Fæst hjá Háskólafjölritun, Fálkagötu 2.
3. Lesefni fyrir verklegar æfingar:
(a) Geirfinnur Jónsson: Kver um meðferð mæligagna í verklegri eðlisfræði.
(b) Vinnuseðlar í eðlisfræði 1.


***

Ýmislegt gagnlegt: