Stjarnvísindafélag Íslands
The Icelandic Astronomical Society
Dunhaga 3, IS-107 Reykjavík, Iceland



Orðaskrá úr stjörnufræði


Orðanefnd félagsins var stofnuð í desember 1990. Formaður nefndarinnar hefur frá upphafi verið Þorsteinn Sæmundsson. Helstu nefndarmenn aðrir hafa verið Guðmundur Arnlaugsson (látinn) og Gunnlaugur Björnsson en auk þeirra sátu þeir Einar H. Guðmundsson, Einar Júlíusson, Guðmundur G. Bjarnason (látinn), Karl Jósafatsson og Þórir Sigursson í nefndinni um lengri eða skemmri tíma.

Árið 1996 gaf nefndin út ensk-íslenska og íslensk-enska Orðaskrá úr stjörnufræði með nokkrum skýringum. Orðasafnið má nú einnig finna í Orðabanka Íslenskrar málstöðvar þar sem það er uppfært reglulega.