English
Dísarheimar Dagbók Rannsóknir (Research) Óskalisti Hver er...? Myndasíðan Gestabók Ísland Gömlu Dísarheimar Dísarhöllin |
Íbúð í Köben?
Sjá tímasetningar neðst :)
Eftirfarandi er í boði: Þriggja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi, ein
stofa) með litlu baðherbergi (sturtan er samt sér :) ) og eldhúsi. Íbúðin
kemur með þvottaaðstöðu, sjónvarpi (kapall) og tilheyrandi og þráðlausu
neti. Afnot af síma innan skynsamlegra marka eru einnig í boði ;) Að auki
er hægt að fá lánað eitt stykki hjól og hjálm! Það er eitt hjónarúm og
tvöfaldur svefnsófi í íbúðinni og ég á hjónasæng, tvær
einstaklingssængur, fjóra kodda ásamt rúmfötum. Það er nóg pláss fyrir
aukadýnur (ég á eina einstaklingsdýnu) í stærra svefnherberginu og í
stofunni. Fyrir utan er stór lokaður garður með grillaðstöðu og
leiktækjum fyrir börn. Íbúðin er staðsett í ytri enda Nörrebro við
Nörrebro lestarstöðina. Það er u.þ.b. 1 mínútna gangur á lestar-eða
strætóstöðina og svo 10-15 mínútur í strætó (eða hjóli) eða hálftíma
röskur gangur niður á Strik.
Myndir:
Ef svo ólíklega vill til að breytingar verða á plönum mínum áskil ég mér allan rétt til að fá að búa sjálf í íbúðinni en gestum verður þó ekki úthýst ef þeir eru sáttir við að sitja þröngt :) Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að hafa samband við mig í gegnum tölvupóst (ardise hjá raunvis punktur hi punktur is) eða síma.
Dísin er ekki heima við:(uppfært
eftir því sem við á)
Vinir og ættingjar eru auk þess ávallt velkomnir í heimsókn þó Dísin sé heima :) |
|