English
Mynd af Dís
Dísarheimar
Dagbók
Rannsóknir (Research)
Óskalisti
Hver er...?
Myndasíðan
Gestabók
Ísland
Gömlu Dísarheimar
Dísarhöllin
Nýjar myndir:
     júlí 2008      
má þr mi fi fö la su
   01 02 03 04 05 06
07 08 09 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31         
                    

Veðrið í dag í Princeton (eða reyndar Trenton)
The WeatherPixie
Uppfærslur dagbóka:

Gamlar færslur
XML yfirlit

Travel log
I've found these posts remarkably helpful when filling out visa forms - so here goes again, my travel plans for the summer:

June 20:
JFK - MXP (via KEF): Stay one night in Milano.
June 21-27:
Cogne, Aosta Valley, Italy (conference)
June 27:
MXP-CPH
June 27-July 17:
Copenhagen (conference and work)
July 17-23:
Ireland (for a wedding)
July 23-August 10:
Iceland (for a wedding and a holiday)
August 10-August 15:
Copenhagen (for work).
August 15:
CPH - KEF
August 16:
KEF - JFK

I will edit and update these as my plans become more concrete. Bold font means dates which are very unlikely to change.
Dís | 14:20 (+0:00) | Vertu fyrst/ur til að svara


Halló heimur!
Hvert fór febrúar eiginlega?

Ég þarf nauðsynlega á svona tímaflakkara - eins og frk. Hermione fékk - að halda. Gæti alveg notað ca. 40 tíma á sólarhring og kannski nokkra aukadaga í vikunni.

Annars þá eru helstu markverðu atburðir síðasta mánaðar óperuferðir. Við höfum drifið okkur alls þrisvar sinnum - fyrst að sjá Adriönu Lecouvreur, þar sem Domingo söng eitt aðalhlutverkið. Það var nokkuð augljóst að maðurinn var vinsæll - fólk byrjaði að klappa um leið og hann steig á sviðið áður en hann náði svo mikið sem að opna kjaftinn. En hann söng nú líka alveg ágætlega.

Næst lá leið okkar á Il Trovatore - sem er í nokkru uppáhaldi hjá mér því að það er fyrsta óperan sem ég sá (í Íslensku óperunni vorið 1986). Síðan þá eru ferðirnar orðnar ansi margar - t.d. er þetta í þriðja eða fjórða skiptið sem ég sé trúbadúrinn.

Nú síðast lá leið okkar í gærkvöldi að sjá Kristinn Sigmundsson í Rusölku eftir Dvorak. Hún er hreint og beint alveg gullfalleg - og sýningin í gær var mjög góð. Þó að söngvararnir fái mesta klappið þá held ég að í þetta skipti myndi ég velja sviðshönnuðinn sem 'besta mann sýningarinnar'. Við náðum svo að hitta Kristinn og Ásgerði eftir sýninguna - og drekka með þeim eins og eitt vínglas - áður en við þustum af stað til að ná síðustu lestinni heim.

Það er nú alveg ágætt að búa í nágrenni NY :)
Dís | 16:44 (+0:00) | Vertu fyrst/ur til að svara


Fríið á enda
Við komum til baka til Princeton í gærkvöldi eftir frekar langt ferðalag. Það er ágætt að vera aftur heima hjá sér en minna spennandi að halda aftur á skrifstofuna og takast á við þá risahrúgu af verkefnum sem bíða.

Ég væri í það minnsta alveg til í smá frí eftir fríið :)
Dís | 10:59 (+0:00) | Vertu fyrst/ur til að svara


Gleðileg jól!
Þar sem það verður lítið um netsamband á Írlandi þá er víst ekki seinna vænna en að óska lesendum netdagbókarinnar gleðilegra jóla :)

Ég verð svo mætt á svæðið þegar það er kominn tími á að sprengja ;)
Dís | 03:48 (+0:00) | Vertu fyrst/ur til að svara


Jólaplön
Hér er ferðaáætlun Dísarinnar þessi jól:

21.-26. desember: Dyflinni.
26.-30. desember: Lundúnir.
30. desember - 5. janúar: Reykjavík.

Vonast til að sjá sem flesta :)
Dís | 13:53 (+0:00) | Vertu fyrst/ur til að svara


Skór
Þá er það orðið öruggt - ég fer ekki í jólaköttinn í ár. Ég keypti nefnilega skó í gær - og þeir sem þekkja mig vel vita að þetta eru engar smáfréttir :) Mér hefur nefnilega alltaf fundist spurningin 'Eru þetta þægilegir skór?' vera jafnfurðuleg og 'Var gaman hjá tannlækninum?'
Dís | 14:08 (+0:00) | Vertu fyrst/ur til að svara


Uglur
Við sáum ekki eina, ekki tvær heldur þrjár uglur í skóginum núna rétt fyrir rökkur. Því miður þá tókst mér ekki að ná góðri mynd af neinni þeirra (var ekki með aðdráttarlinsuna og það var frekar dimmt). Við höfum heyrt í þeim áður en þetta er í fyrsta skipti sem við sjáum þær.
Dís | 17:42 (+0:00) | Vertu fyrst/ur til að svara

This is an important message
Símaspam er eitt af þeim séramerísku fyrirbærum sem fara örlítið í taugarnar á mér. Og nei, ég er ekki að tala um símtöl þar sem að fremur þreyttur símasölumaður er að reyna að selja þér eitthvað sem þú ekki vilt. Svoleiðis símtöl (sem eru pirrandi líka á sinn hátt) flokka ég ekki sem 'spam'.

'Spam' er þegar sama netbréfið er sent á milljónir netfanga - en ekki þegar manneskja situr og skrifar sérstakt bréf fyrir hvert fórnarlamb. Á sama hátt er símaspamið á þann veg að þegar þú tekur upp tólið, þá er ekki manneskja á línunni, heldur 'símsvari' sem fer vélrænt í gegnum lista af símanúmerum.

Skilaboðin byrja yfirleitt á 'Þetta eru mikilvæg skilaboð frá ...' þar sem ... getur verið hvað sem er (þessi aðferð er jafnvel notuð af stjórnmálaflokkunum í kosningabaráttu). Ég er búin að vera fjarri þessu landi nógu lengi til að falla fyrir vitleysunni í fyrsta sinn (hlustaði á fyrsta símtalið í gegn því ég hélt að þetta væru kannski 'mikilvæg skilaboð' sem ég þyrfti að skila til Dónals). Núna hins vegar skelli ég á um leið og símsvarinn fer í gang. Ef einhver þarf virkilega að koma mikilvægum skilaboðum til mín, þá hljóta þeir að senda alvöru manneskju í verkið.

Ég ætti kannski að finna út úr hvað símanúmerið hérna er - og skrá það svo á 'ekki hringja listann' góða.
Dís | 10:03 (+0:00) | Vertu fyrst/ur til að svara


Icelandic/English?
I've been blogging in English for the last few years so that a certain someone could read what I write. However, nowadays, that certain someone is part of what I write about so I've been thinking about switching back to Icelandic.

But first I'd like to check if there are any semi-regular readers of this blog who can't understand Icelandic?

So, if you are keen on having me continue in English, please let me know :)
Dís | 11:22 (+0:00) | Vertu fyrst/ur til að svara


Turkey and Processors
We had a lovely Thanksgiving weekend (photos) - Dónal's brother and sister in law came from NY and his mother came over from Dublin. We cooked up a lovely turkey - so perhaps our 'practice sessions' on chickens in the previous weeks paid off :)

I'm quite shocked at how quickly time passes - it's already December and the advent has arrived! Usually I'm quite happy for time to pass quickly before Christmas, but this time around I could really do with slowing time down a bit. Or magically fitting in a few days extra. The other option is to get a processor and memory upgrade for the brain - but I think we are still a few decades or centuries away from that...
Dís | 18:48 (+0:00) | Vertu fyrst/ur til að svara


Höfundur síðu: Árdís Elíasdóttir


This page is powered by Blogger. Isn't yours?