Sólstöðuhlaupið 2001 fór að þessu
sinni fram laugardaginn (í dag) 22. desember í einstöku
blíðskaparveðri (hlýindi og smá rigningarúði)
og
góðum hlaupaskilyrðum. Samtals 8 hlauparar hófu
hlaupið við sólarupprás kl. 11:22 frá Vesturbæjarlauginni.
Fleiri hlauparar bættust við á leiðinni, fyrst við
Nauthólsvíkina og svo í Grafarvoginum. Mest tóku
12 hlauparar þátt í hlaupinu. Þar af hlupu fimm
allan daginn eða meira en 4 klst og 9 mínútur (sólarlag
var kl. 15:31). Þeir voru: Sigurður Gunnsteinsson,
Gísli Ragnarsson, Svanur Bragason, Jakob Ragnarsson og Ágúst
Kvaran, sem hlupu allt að 42 km vegalengd, eða
maraþonvegalengdina. Það var mál manna að
loknu hlaupi að nú væru menn tilbúnir að mæta
jólakrásunum með góðri samvisku!
Myndir tengdar hlaupinu er að finna á slóðinni:
http://www.raunvis.hi.is/~agust/hlaup/solsthl01/solsthl01.htm