Ég berst á fótum fráum
fram um veg.
Mót Skútustöðum háum
þeysi ég
og flugan kyssir kinn
og flugan kyssir kinn.
Á harða harða spretti hendist áfram
líííkaminn.
Mér finnst sem fjöllin fljúgi móti mér
sem kólfur loftið kljúfi
kroppurinn fer
og lund mín er svo létt
og lund mín er svo létt
sem ég gæti gjörvallt lífið geysast
fram í eeendasprett.
Trausti
(Lag: Ég berst á fáki fráum ......)