Sólstöðuhlaupið 2001, verður að þessu sinni hlaupið laugardaginn 22. desember. Þá verður  hlaupið frá sólarupprás (11:17) til sólarlags (15:30),
frá og að Vesturbæjarlauginni. Í megindráttum verður hlaupin sama leið og farin er í vor og haust-maraþonum FM, þó þannig að farinn er "öfugur hringur" um Grafarvoginn.  Drykkir verða í sundlaugum Grafarvogs og Árbæjar. Sólstöðuhlaupið er "félagshlaup" til þess fallið að styrkja hlaupara andlega og líkamlega á skammdegistíma. Sumir hlaupa alla leiðina / allan tímann, aðrir   hlaupa hluta af leiðinni innan tiltekinna tímamarka háð  vilja og/eða mætti.  Hlaupahraði er á að giska  6 mín per km.