Á þrettándanum (6.1.2002) var hlaupið frá Grafarvogslaug. Hlaupið var móti
norðanvindi og slyddu eftir Hafravatnsvegi. Þegar komið var upp undir
Reykjalund var skjólbetra og hillti undir meðvind á bakaleiðinni. Þá varð
til eftirfarandi limra:
Á heimleið úr löngu hlaupi:
Nú mannraun að mestu er lokið
mikið er andskotans rokið.
Blautt er og kalt
og blástur um allt.
Ég er feginn að hafa ekki fokið.
höfundur:
Gautur Þorsteinsson