Eðlisefnafræði B, 21. febrúar, 2001
Gleypnimælingar; dæmi og úrlausn

Verkefni:

Lífefnafræðingur leysir upp 0,75 g af fenýlalanine (C7H7CHNH2COOH) í 250 ml af vatni.Þegar sýni af þessari lausn er komið fyirr í 1 cm langri kúvettu og gleypnimælt fyrir 257 nm geislun kemur í ljós að gleypnin er of mikil til að vera mælanleg (mettun).Við tífalda þynningu mælist gleypnin hins vegar 0,36 við 257 nm. Hver er mólar gleypnistuðull (e) fenýlalaníns við 257 nm og hve mikill hluti geislunar upphaflega (óþynnta) sýnisins gleypist?
 

Úrlausn:

Lausn: Mólmassi fenýlalaníns = 165,188 g/mól

Gleypnistuðul má fá út frá mælingunni fyrir þynnta sýnið

Styrkur þess = 0,75g / (10*0,25 L * 165,188 g/mól) = 1,816*10-3 M

Gleypnistuðull = 0,36 / (1,816*10-3 M * 1 cm) = 198,2256 M-1 cm-1

Ef Beer´s lögmál gildir, ætti óþynnta sýnið að gefa gleypni upp á 3,6

Gleypni = log (I0/I)

Þá er I0/I = 103,6 = 3981

Þá er I/I0 = 2,5*10-4 = 0,025% þannig að 99,975% af ljósinu gleypist.

----------------------------

Höfundar úrlausnar: Óttar Rolfsson og Rökkvi Vésteinsson, apríl, 2001

Yfirfarið hefur: Ágúst Kvaran, apríl, 2001