Eðlisefnafræði 3, 6. marz 2000;
Dæmi og úrlausn viðkomandi litrófsgreiningu litarefna
Verkefni
Rafeindir í p-tengjakerfi sameindarinnar hexatríenmá meðhöndla sem massaagnir í einvíðum orkubrunni með 1,00 nm brunnlengd.a) Hve margar rafeindir eru í orkubrunninum?
b) Hverjar eru skammtatölur hæsta hýsta skammtaþreps (HOMO) og lægsta óhýsta skammtaþreps (LUMO) orkubrunnsins?
c) Hver er bylgjulengd gleypnitopps sameindarinnar vegna tilfærslu úr HOMO í LUMO?
Úrlausn:
a) Þar sem um þrjú p -tengi er að ræða eru sex p -rafeindir í orkubrunninum, ein frá hverju kolefnisatómi.b) Í einvíðum orkubrunni er ekki um neina margfeldni að ræða og því raðast rafeindirnar sex á þrjú neðstu orkuþrep brunnsins. Því er nHOMO = 3 og nLUMO = 4.
c) Orka agnar með massann m í einvíðum orkubrunni með lengd L í n-ta orkuþrepi er
![]()
þar sem h er fasti Plancks. Því er orkumunurinn milli tveggja þrepa, n1 og n2
![]()
Þar sem DE = hn og c = nl er
![]()
Þegar við setjum tölugildi inn í þessa jöfnu fæst
![]()
Þ.e. bylgjulengd gleypnitoppsins er því u.þ.b. 471 nm.
Höfundur úrlausnar:
Finnbogi Óskarsson
10. 3. 2000
yfirfarið hefur
Ágúst Kvaran, mars, 2000