Ágætu félagsmenn Íslenska stærðfræðafélagsins.
Fjórða ráðstefna félagsins undir yfirskriftinni Stærðfræði á Íslandi verður haldin á
Hótel Borgarnesi dagana 17. - 18. nóvember nk.
Fjölbreytt dagskrá er í mótun. Þegar hefur verið ákveðið að hafa eftirtaldar fyrirlestralotur:
- fjármálastærðfræði
- stærðfræðikennsla í framhaldsskólum
- kynning doktorsnema í HÍ á verkefnum sínum
- blandað efni um stærðfræði.
Þess verður minnst að 60 ár eru liðin frá stofnun félagsins um þessar mundir.
Áhugasamir fyrirlesarar eru beðnir að snúa sér til
Skráning er hafin hér, og eru áhugasamir hvattir til þess
að skrá sig
sem fyrst og ekki síðar en á þriðjudaginn 13. nóvember.
Verðið er 20.000 kr. fyrir einbýli, 18.000 kr. fyrir tvíbýli
og 10.000 kr. (12.000 kr.) fyrir stærðfræðistúdenta í tvíbýli (einbýli).
Búið er að lækka ráðstefnugjaldið fyrir BS nemendur niður í 5.000 kr (í tvíbýli).
Ráðstefnugjald greiðist inn á reikning Íslenska stærðfræðafélagsins
nr: 0137-26-009122, kt: 540272-0429.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir þá vinsamlegast hafðu samband við
Í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar eru
- Benedikt Steinar Magnússon
- Gunnar Stefánsson
- Halldór Halldórsson
- Kristján Jónasson (dagskrárstjóri)
- Ólafur Ísleifsson (ráðstefnustjóri)
- Sigrún Helga Lund
- Sigríður Hlíðar
- Sigurður F. Hafstein
- Sverrir Þorvaldsson