Rannsóknasvið og starfsmenn á Lífefnafræðideild
Við lífefnafræðideild Raunvísindastofnunar hafa rannsóknaraðstöðu fimm kennarar úr efnafræðinámsbraut raunvísindadeildar og einn kennari úr matvæla-og næringarfræðideild Heilbrigðisvísindasviðs. Auk þeirra starfa á deildinni nokkrir sérfræðingar, nemar í rannsóknatengdu framhaldsnámi til meistara- eða doktorsprófs, rannsóknamenn og nemar sem vinna að lokaverkefnum til BS-prófs. Þau rannsóknaverkefni sem unnið er að á deildinni eru á eftirtöldum sviðum: Rannsóknir á hreinvinnslu, eiginleikum og hagnýtingu próteina, einkum ensíma, rannsóknir á sameindafræðilegum forsendum kuldaaðlögunar próteina, rannsóknir í erfðatækni og hagnýtingu hennar til ensímframleiðslu fyrir ýmsan iðnað, rannsóknir á efnaskiptum í tengslum við sjúkdóma, og rannsóknir á lyfjaefnum úr íslenskum jurtum.
Forstöðumaður: Dr. Bjarni Ásgeirsson prófessor. Nánari upplýsingar á tenglum hér til hægri.

Febrúar 2009 






