|
Stærðfræðistofa
Raunvísindastofnun
Háskólans
Stofustjóri: Jón I. Magnússon |
|---|---|
|
|
|
Kennarar við Raunvísindadeild:
Sérfræðingar:
Samvinnusérfræðingur:
Doktorsnemar:
Meistaranemar:
Stærðfræðistofa er vettvangur rannsókna í stærðfræði og stærðfræðilegri eðlisfræði. Þar starfa níu fastir kennarar í raunvísindadeild og sex sérfræðingar. Tveir hinna síðarnefndu sitja í nýdoktora-stöðum á vegum Lárusar Thorlacius og Þórðar Jónssonar sem eru kostaðar af rannsóknastyrkjum. Við stofuna eru jafnframt átta stúdentar í rannsóknatengdu námi. Af þeim eru fimm í doktorsnámi og hafa fjórir þeirra hlotið styrk úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands.
Viðfangsefni stofunnar spanna margar sérgreinar stærðfræði og stærðfræðilegrar eðlisfræði. Þau helstu eru á sviði algebru, algebrulegrar grannfræði og algebrulegrar rúmfræði, tvinnfallagreiningar og fágaðrar rúmfræði, skammtasviðsfræði, strengjafræði, óvíxlinnar rúmfræði, diffurrúmfræði, fellagreiningar, ólínulegra hlutafleiðujafna, kvíslunarfræði og netafræði.
Niðurstöður rannsókna sinna birtir starfsfólk stofunnar í skýrslum Raunvísindastofnunar sem og í innlendum og alþjóðlegum fagtímaritum.
Starfsfólk stofunnar á öflugt samstarf á fræðasviðum stofunnar við fólk víða um heim og algengt er að samstarfsfólk erlendis frá dvelji við stofuna til að vinna að sameiginlegum rannsóknaverkefnum.
Málstofa í stærðfræði hefur verið starfrækt á vegum stofunnar frá árinu 1975. Í málstofunni kynna starfsmenn stofunnar, vísindamenn á skyldum fræðasviðum og erlendir samstarfsmenn rannsóknir sínar eða aðrar nýjungar í stærðfræði og stærðfræðilegri eðlisfræði. Jóhann Sigurðsson hefur umsjón með málstofunni (Sjá hlekk hér að neðan).
Here is our English Homepage
![]()
- Ensk-íslensk stærðfræðiorðaskrá
- Íslenska stærðfræðafélagið
- Málstofa
- Þetta er heimasíða samstarfsnets a vegum Evropubandalagsins
- Tenglar í aðrar síður
- Heimasíða Háskóla Íslands
Þessi síða hefur verið heimsótt sinnum síðan 30. júlí 1997
Gerlinde Xander