Stærðfræðistofa Raunvísindastofnun Háskólans

Stofustjóri:
Rögnvaldur Möller




Kennarar við Raunvísindadeild:

Sérfræðingar:

Samvinnusérfræðingur:

Meistaranemar:


Stærðfræðistofa er vettvangur rannsókna í stærðfræði og stærðfræðilegri eðlisfræði. Þar starfa níu fastir kennarar í raunvísindadeild og þrír sérfræðingar. Reyndar er Lárus Thorlacius, prófessor í kennilegri eðlisfræði, aðeins í hlutastarfi um þessar mundir meðan hann gegnir starfi forstöðumanns NORDITA í Stokkhólmi. Við stofuna eru jafnframt fimm stúdentar í rannsóknatengdu námi. Af þeim eru tveir í doktorsnámi.

Viðfangsefni stofunnar spanna margar sérgreinar stærðfræði og stærðfræðilegrar eðlisfræði. Þau helstu eru á sviði algebru, algebrulegrar grannfræði og algebrulegrar rúmfræði, tvinnfallagreiningar og fágaðrar rúmfræði, skammtasviðsfræði, strengjafræði, óvíxlinnar rúmfræði, diffurrúmfræði, fellagreiningar, ólínulegra hlutafleiðujafna, kvíslunarfræði og netafræði.

Niðurstöður rannsókna sinna birtir starfsfólk stofunnar í skýrslum Raunvísindastofnunar sem og í innlendum og alþjóðlegum fagtímaritum.

Starfsfólk stofunnar á öflugt samstarf á fræðasviðum stofunnar við fólk víða um heim og algengt er að samstarfsfólk erlendis frá dvelji við stofuna til að vinna að sameiginlegum rannsóknaverkefnum.

Málstofa í stærðfræði hefur verið starfrækt á vegum stofunnar frá  árinu 1975. Í málstofunni kynna starfsmenn stofunnar, vísindamenn á skyldum fræðasviðum og erlendir samstarfsmenn rannsóknir sínar eða aðrar nýjungar í stærðfræði og stærðfræðilegri eðlisfræði. Jóhann Sigurðsson hefur umsjón með málstofunni (Sjá hlekk hér að neðan).




Here is our English Homepage      





Þessi síða hefur verið heimsótt sinnum síðan 30. júlí 1997

Gerlinde Xander