Nýtt Reiknisetur við Raunvísindastofnun Háskólans
Öndvegisstyrkur frá Rannsóknasjóði Vísinda- og tækniráðs að upphæð 25 milljónir árlega, í 3 ár, er kjölfesta nýs Reikniseturs við Raunvísindastofnun Háskólans. Setrið verður vettvangur rannsókna og kennslu framhaldsnema í reiknifræði (computational science) í raunvísindum og mun reka tölvuklasa með samtals 800 reiknieiningum. Til að byrja með verða 15 framhaldsnemar og nýdoktorar starfandi við setrið auk fjögurra verkefnisstjóra, þeirra Hannesar Jónssonar og Viðars Guðmundssonar prófessora við Raunvísindadeild HÍ, og Andrei Manolescu og Sigurðar I. Erlingssonar prófessora við HR.
Ýmis rannsóknaverkefni, sem eru ofarlega á baugi í efnafræði, eðlisfræði þéttefnis og efnisfræði, verða unnin í reiknisetrinu. Um er að ræða þróun nýrra efna fyrir sjálfbæra orkunotkun, þar með talið endurnýjanlega orkubera, efnahvata fyrir eldsneytisframleiðslu og efni í sólhlöður. Einnig verða rannsökuð efni og rásir fyrir örsmáa rafeindatækni á nanómetra skala með sérstaka leiðni- og seguleiginleika sem og spunarásir.
Tölvureikningarnir eru byggðir á grundvallarlögmálum eðlisfræðinnar,
skammtafræðinni, um hegðun atóma og rafeinda í efni og sértækir
eiginleikar nanókerfa eru nýttir til að fá fram æskilega eiginleika efnisins
í smáum kerfum og á stórsæjum skala.
Mynd: Rafeindabylgja flæðir í segulsviði eftir skammtavír frá vinstri
rekst á óreglu í vírnum. Lítill hluti kemst áfram en stærri hluti
endurkastast og víxlast við innbylgjuna.