Stofan hefur á að skipa tveimur sérfræðingsstöðum, sem ráðið er í til 1-3 ára í senn og eru þær einkum ætlaðar fræðimönnum til áframhaldandi rannsókna að loknu doktorsprófi. Kennarar Verk- og Raunvísindadeildar í stærðfræði, tölvunarfræði og iðnaðarverkfræði hafa þar starfsaðstöðu til rannsókna. Gestir erlendis frá starfa oft um lengri eða skemmri tíma við Reiknifræðistofu, eins og á við um aðrar stofur stofnunarinnar, og sömuleiðis stúdentar, einkum á sumrin.
Á Reiknifræðistofu er aðallega fengist við rannsóknir í hinum hagnýtari greinum stærðfræðanna, sem svo eru kallaðar, til dæmis í aðgerðagreiningu, lífstærðfræði, líkinda- og tölfræði og tölulegri greiningu, svo og í hinum ýmsu greinum tölvunarfræða. Árangur rannsóknanna birtist meðal annars í tímaritum, ráðstefnuritum og ritröð Raunvísindastofnunar.
Starfsemi Reiknifræðistofu má skipta í þrjá meginþætti. Í fyrsta lagi grunnrannsóknir á þeim sviðum sem undir stofuna heyra. Í öðru lagi rannsóknir heimfærðar á verkefni innan annarra fræðigreina, og hafa þær rannsóknir á undanförnum árum einkum beinst að verkefnum innan fiskifræði og sjávarútvegs, læknisfræði, jarðeðlisfræði og upplýsingatækni: hefur þá að jafnaði verið um að ræða náið samstarf við fræðimenn innan þessara greina. Í þriðja lagi er margskonar þjónustu og ráðgjöf sinnt á stofunni, og eru þar reyndar skil rannsókna og þjónustu oft óglögg.
Árlegt yfirlit yfir starfsemi stofunnar má finna hérna.
