STARFSEMI


Lífefnafræði og líftækni.

Lífefnafræði er grunnvísindagrein sem sækir aðferðir sínar til efnafræði en viðfangsefni hennar er lífheimurinn. Hún fjallar um byggingu, gagnverkan og ummyndun lífefna í víðum skilningi. Lífefnafræði er meginstoð alls skilnings manna á lífverum, eðli þeirra og starfi með því að hún greinir og skýrir viðfangsefni sín með hugtökum efnafræði. Lífefnafræði er einnig hagnýt fræðigrein sem beitir niðurstöðum rannsókna til hagnýtra verka á ýmsum sviðum svo sem við efnasmíðar, lyfjafræði, lækningar, matvælavinnslu, erfðatækni og margt fleira. Öll líftækni er að stofni til hagnýtt lífefnafræði.



Rannsóknasvið og starfsmenn á Lífefnafræðistofu.

Við stofuna hafa rannsóknarastöðu fimm kennarar úr efnafræðiskor raunvísindadeildar og tveir kennarar úr matvælafræðiskor (sjá næstu síðu). Auk þeirra starfa á stofunni nokkrir sérfræðingar, nemar í rannsóknatengdu framhaldsnámi til meistaraprófs, rannsóknamenn og nemar sem vinna að lokaverkefnum til BS-prófs. Þau rannsóknaverkefni sem unnið er að á stofunni eru á eftirtöldum sviðum: Rannsóknir á hreinvinnslu, eiginleikum og hagnýtingu próteina, einkum ensíma, rannsóknir á sameindafræðilegum forsendum kuldaaðlögunar próteina, rannsóknir í erfðatækni og hagnýtingu hennar til ensímframleiðslu fyrir ýmsan iðnað, rannsóknir á efnaskiptum í tengslum við sjúkdóma, og rannsóknir á lyfjaefnum úr íslenskum jurtum.



Tækjabúnaður.

Tækjabúnað stofunnar má flokka sem hér segir: Almennur búnaður til hreinvinnslu próteina svo sem skilvindur og súlugreiningarbúnaður af ýmsu tagi. Mælitæki til rannsókna og greininga á próteinum og ensímum svo sem litrófsmælar, rafdráttarbúnaður, hvarfahraðamælar, tæki til varmafræðilegra mælinga, flúrljómunarmælir, CD-spectrometer, amínósýrugreinir og próteinraðgreiningartæki. Búnaður til gerlaræktunar og til kjarnsýruvinnu. Tæki til greiningar og rannsókna á smærri sameindum m.a. massagreinir. Auk þess hafa starfsmenn stofunnar aðgang að tækjabúnaði efnafræðistofu og efnafræðiskorar, til dæmis gasgreiningarbúnaði og kjarnarófstæki (NMR 400 MHz) og MALDI-TOF massagreini.



Nám í lífefnafræði við Háskóla Íslands.

Kennsla í lífefnafræði til BS-prófs fer fram innan vébanda efnafræðiskorar raunvísindadeildar en í matvæla- og næringarfræði innan matvælafræðiskorar. Námið er byggt á grunni traustrar þekkingar á efnafræði, eðlisfræði og stærðfræði, auk þess sem nemendur taka nokkur undirstöðunámkeið í ýmsum greinum líffræði við líffræðiskor. Rannsóknatengt framhaldsnám til meistaraprófs í lífefnafræði felst að mestum hluta í rannsóknarverkefnum sem unnin eru á Lífefnafræðistofu undir handleiðslu kennara og sérfræðinga stofunnar. Hluti verkefnaþáttar framhaldsnáms í matvælafræði fer einnig fram á stofunni.









xander@raunvis.hi.is
12.07.2005