Ólafur K. Nielsen,
Náttúrufræðistofnun

Tengsl fálkans og rjúpunnar


Stofnlíkan hefur verið gert fyrir íslensku rjúpuna og byggir á gögnum sem safnað hefur verið á Norðausturlandi síðan 1981. Líkanið getur hermt eftir 10-ára stofnsveiflu rjúpunnar og það sýnir að það eru haust- og vetrarafföll sem eru sértæk fyrir rjúpur á fyrsta ári sem er lýðfræðileg skýring stofnsveiflunnar. Þessi afföll, sem kölluð eru umframafföll ungfugla , rísa og hníga í takt við stofnsveiflu rjúpunnar en hnikað þannig að þungi þeirra er mestur tveimur til fjórum árum á eftir hámarki í stofnstærð rjúpunnar. Tengsl eru á milli stofnstærðar fálka og vægis umframaffalla ungfugla rjúpu sem bendir til þess að hugsanlega sé fálkinn einn af orsakavöldum rjúpnasveiflunnar. Í erindinu verður fjallað um þessar rannsóknir á rjúpu og fálka sem stofnlíkanið byggir á. Sagt verður frá rannsóknasvæðinu og hvernig staðið er að rannsóknunum. Síðan verður fjallað um hvað þessar rannsóknir hafa sagt um lífshætti tegundanna og tengsl þeirra. Sérstaklega verður hugað að því hvernig fálkastofninn svarar stofnbreytingum rjúpunnar og þá bæði horft til atferlissvörunar (functional response) og stofnsvörunar (numerical response).