Segulmælingastöðin í Leirvogi

Mælitæki í Leirvogsstöðinni skrá breytingar á segulsviði jarðar. Sumar þessarra breytinga eru snöggar af völdum rafagnastrauma frá sólinni. Aðrar hægfara breytingar má rekja til hræringa í kjarna jarðar. Tilgangur mælinganna er að kanna samband þessarra breytinga við önnur fyrirbæri, bæði jarðeðlisfræðileg og stjarnfræðileg. Mælingarnar hafa meðal annars leitt í ljós óvæntar breytingar í segulsviðinu milli ára, svo og breytingar á milli landshluta. Þá hafa þær veitt forvitnilegar upplýsingar um svonefndar risasveiflur sem tengdar eru norðurljósabeltinu. Langtímamælingarnar eru einnig notaðar til að leiðrétta kort fyrir siglingar og flug. Samanburðarmælingar eru gerðar á völdum stöðum úti á landi. Segulmælingastöðin í Leirvogi er talin ein af þeim mikilvægustu í heiminum, enda staðsett í norðurljósabeltinu í miðju Norður-Atlantshafi. Mikil eftirspurn er eftir gögnum frá stöðinni.

Háloftadeild sér einnig um rekstur tveggja stöðva til norðurljósarannsókna, en stöðvarnar eru í eigu Pólrannsóknastofnunar Japans. Ein stöðin er í Borgarfirði, en hin á Tjörnesi. Stöðvunum var komið upp árið 1983.

Loks sér deildin um rekstur tveggja ratsjárstöðva til háloftarannsókna. Er önnur staðsett við Stokkseyri en hin við Þykkvabæ. Sú fyrri er í eigu franskra rannsóknastofana, en hin í eigu háskólans í Leicester.

Tenglar:
  • http://www.raunvis.hi.is/~halo/leirvogur.html
  • http://www.nipr.ac.jp/english/
  • http://superdarn.jhuapl.edu/