Rannsóknir

Á efnafræðistofu eru stundaðar fjölþættar grunnrannsóknir í kennilegri efnafræði, eðlisefnafræði, ólífrænni efnafræði, málmlífrænni efnafræði og lífrænni efnafræði. Viðfangsefnin eru af margvíslegum toga og meðal þess sem fengist er við á stofunni eru tölvureikningar til að spá fyrir um eiginleika efna, litrófsmælingar með leysitækni, nýsmíði ólífrænna og lífrænna efna, og einkenning efna með kjarnarófsmælingum.


Nánari lýsing á rannsóknarverkefnum er að finna á heimasíðum einstakra kennara og sérfræðinga. Ýmsar gagnlegar upplýsingar um starfsemi tengda efnafræði er að finna á heimasíðu efnafræðiskorar Háskóla Íslands: Þar er m.a. að finna upplýsingar um nám og framhaldsnám í efnafræði við Háskóla Íslands, og framhaldsnám erlendis. Á heimasíðu Efnafræðifélags Íslands, EfnÍs, er m.a. að finna upplýsingar um Olympíuleikana í efnafræði.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
English


