Raunvísindastofnun

Efnafræðistofa

Kennarar

 


Eðlisefnafræði


Ágúst Kvaran, prófessor

Litrófsgreiningar til að ákvarða sameindastellingar, orkuskipan í efnum og lögun sameinda. Til dæmis sundrum sameinda með sterkum LASER geislum og massagreiningar. Einnig NMR litrófsgreiningar sem felast í atómkjarnspunabreytingum. Túlkanir mæligagna með reiknilíkönum.
agust@hi.is

 


 



Hannes Jónsson, prófessor
Þróun aðferða til að spá fyrir um gang og hraða efnabreytinga með tölvuútreikningum byggðum á grundvallar jöfnum eðlisfræðinnar. Rannsóknir á efnahvötun á yfirborði fastra efna, vexti kristalla og geymslu vetnis í föstum efnum.
hj@hi.is

 





Oddur Ingólfsson, dósent
Rannsóknir á jónunarferlum, meðferð hlaðinna sameinda og sameindaþyrpinga í lofttómi sem og tækjahönnun og smíði. Grunnrannsóknir á eðli þeirra ferla sem liggja að baki massagreiningu stórra sameinda, sérstaklega MALDI-TOF tækni sem valdið hefur straumhvörfum rannsóknum á lífefnasameindum.
odduring@hi.is

 




Victor Huasheng Wang, sérfræðingur

Litrófsgreiningar, t.a.m. með fjölljóseindajónun og REMPI. Massagreiningar.
wang@raunvis.hi.is

 

 

 

 

 



Lífræn efnafræði


Guðmundur G. Haraldsson, prófessor
Efnasmíðar á fituefnum af glyseríð toga sem sett eru ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum, t.d. stöðubundin þríglyseríð, eterlípíð og fosfólípíð. Lípösum er beitt til að stjórna staðvendni í þessum efnasmíðum. Undanfarið hefur verið lögð mest áhersla á efnasmíðar handhverfuhreinna stöðubundinna lípíða.
gghar@raunvis.hi.is



 



Jón K.F. Geirsson, prófessor
Leit að nýjum efnum sem sýna virkni gegn krabbameinsfrumum, berklabakteríunni og sveppum. Einnig leit að nýjum ensímhindrum, þ.e. nýsmíði efna og könnun á hindrunareiginleikum þeirra. Nýsmíði lífrænna efna og rannsóknir á þeim þáttum sem hafa áhrif á lögun sameindanna. Þar er m.a. stuðst við NMR róf og tölvulíkön.
jkfg@raunvis.hi.is

 

 

 


Snorri Þór Sigurðsson, prófessor
Efnafræði kjarnsýra og rannsóknir á eiginleikum þeirra. Notkun lífrænna efnasmíða til þess að innleiða ýmsa hópa í DNA og/eða RNA sameindir. Slíkar merkingar nýtast við lífeðlisfræðilegar rannsóknir á kjarnsýrum og komplexum þeirra við aðrar sameindir, t.d. prótein.
snorrisi@hi.is


 

 

 

 

Ólífræn efnafræði


Ingvar Árnason
, prófessor

Nýsmíði á lífrænum kísilsamefnum, einkum kísilafleiðum af cyclohexan. Tilraunir og tölvuútreikningar eru notaðir til að rannsaka stellingar og hreyfanleika sameindanna, þar með áhrif sethópa. Einnig smíði nýrra komplexa og rannsóknir á kristalbyggingu og niðurbrotshvörfum þeirra.
ingvara@raunvis.hi.is




 


Sigurjón N. Ólafsson, dósent
Málmlífræn efnafræði. Efnasmíð nýrra girðiefnasambanda aðalmálmanna Ge, Sn, Pb og Hg og hliðarmálmanna Ni, Pd, Pt, Cu og Ag. Sem tengihópar eru notaðir mistenntir brennisteins- og fosfórríkir tenglar auk lífrænna alkyl- og arylhópa.
snolaf@raunvis.hi.is

 

 

 


Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur
Rannsóknir byggðar á NMR (nuclear magnetic resonance) mælingum m.a. til að ákvarða uppbyggingu efna og til að fá upplýsingar um hreyfingu sameinda í lausn. Umsjón með NMR tæki RH og framkvæmd NMR mælinga fyrir og samvinna við ýmsa rannsóknahópa í raunvísindadeild og lyfjafræðideild.
sigga@raunvis.hi.is