
Um setrið
Eins og kemur fram á upphafssíðunni þá er setrið sjálfstæð stofnun. Fyrst um sinn mun efnafræðistofa standa straum af kostnaði rekstursins, en setrinu er ætlað að standa straum af launa- og rekstrarkostnaði sínum með gjaldtöku þjónustunnar sem boðið er upp á.
Helstu verkefni setursins samkvæmt stofnskrá þess eru:
- Að sinna efnagreiningaþjónustu innan HÍ og tengdra stofnana.
- Að bjóða háskólum, stofnunum og öðrum aðilum óskyldum HÍ upp á efnagreiningar eftir því sem verkefnastaða leyfir.
- Að veita ráðgjöf í efnagreiningu.
- Að vera vettvangur fyrir rannsóknir og þar með vettvangur nemenda í meistara- og doktorsnámi í efnagreiningum innan HÍ.


