|
Hinn 23. apríl voru Útflutningsverðlaun forseta Íslands veitt í tuttugasta sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hafa frá árinu 1989 verið veitt einstaklingum eða fyrirtækjum fyrir markvert framlag til eflingar á útflutningsverslun og gjaldeyrisöflun íslensku þjóðarinnar. Útfluningsverðlaunin 2008 féllu í skaut Baugs Group fyrir glæsilegan árangur á alþjóðlegum markaði. Einnig hlutu Rögnvaldur Ólafsson dósent, Einar Benediktsson fyrrverandi sendiherra og Björk Guðmundsdóttir söngkona heiðursviðurkenningu forsetans og segir á heimasíðu forseta Íslands að þessir þrír einstaklingar séu fulltrúar fyrir þá fjölmennu sveit í opinberri þjónustu, vísindum og menningu sem á margvíslegan hátt hefur stutt sókn íslenskra fyrirtækja á alþjóðlegan markað. Rögnvaldur Ólafsson, dósent við eðlisfræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Íslands hlaut viðurkenningu sína fyrir frumkvöðlastarf á sviði vísinda og tækni sem hefur stóreflt íslenskan útflutningsiðnað. Rögnvaldur átti stóran þátt í stofnun fyrirtækisins Marel sem hófst sem nýsköpunarverkefni á rannsóknarstofu Rögnvaldar á Raunvísindastofnun Háskólans. Þar þróaðist verkefnið í fimm ár uns það varð að fyrirtækinu Marel árið 1983. Í dag, liðlega 25 árum síðar, er Marel heimþekkt fyrirtæki sem borið hefur hróður Íslendinga víða. |