Lífefnafræði er grunnvísindagrein sem sækir aðferðir sínar til efnafræði en viðfangsefni hennar er lífheimurinn. Hún fjallar um byggingu, gagnverkan og ummyndun lífefna í víðum skilningi.
Lífefnafræði er meginstoð alls skilnings manna á lífverum, eðli þeirra og starfi með því að hún greinir og skýrir viðfangsefni sín með hugtökum efnafræði.
Lífefnafræði er einnig hagnýt fræðigrein sem beitir niðurstöðum rannsókna til hagnýtra verka á ýmsum sviðum svo sem við efnasmíðar, lyfjafræði, lækningar, matvælavinnslu, erfðatækni og margt fleira. Öll líftækni er að stofni til hagnýtt lífefnafræði.
[Frekari upplýsingar á Wikipedia] |