Lífefnafræðideild / Verkfræði- og Náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands

Vísindavefurinn | Hvarf | Kort / Maps
subglobal1 link | subglobal1 link | subglobal1 link | subglobal1 link | subglobal1 link | subglobal1 link | subglobal1 link
subglobal2 link | subglobal2 link | subglobal2 link | subglobal2 link | subglobal2 link | subglobal2 link | subglobal2 link
subglobal3 link | subglobal3 link | subglobal3 link | subglobal3 link | subglobal3 link | subglobal3 link | subglobal3 link
subglobal4 link | subglobal4 link | subglobal4 link | subglobal4 link | subglobal4 link | subglobal4 link | subglobal4 link
subglobal5 link | subglobal5 link | subglobal5 link | subglobal5 link | subglobal5 link | subglobal5 link | subglobal5 link
subglobal6 link | subglobal6 link | subglobal6 link | subglobal6 link | subglobal6 link | subglobal6 link | subglobal6 link
subglobal7 link | subglobal7 link | subglobal7 link | subglobal7 link | subglobal7 link | subglobal7 link | subglobal7 link
subglobal8 link | subglobal8 link | subglobal8 link | subglobal8 link | subglobal8 link | subglobal8 link | subglobal8 link

Lífefnafræðideild efnafræðistofu

- Raunvísindastofnun Háskóla Íslands small logo

 

Saga

Lífefnafræðistofa var formlega sett á stofn í ársbyrjun 2000. Hún hafði áður verið önnur tveggja deilda efnafræðistofu og varð til við samruna efnafræðistofu og Lífefnafræðistofu HÍ sem starfaði við læknadeild til ársins 1995. Hún er hluti Raunvísindastofnunar háskólans sem heyrir undir raunvísindadeild. Árið 2008 var lífefnafræðistofa aftur færð inná efnafræðistofu og breyttist heiti hennar þá í lífefnafræðideild (Department of Biochemistry).

Rannsóknasvið og starfsmenn á Lífefnafræðideild

Við lífefnafræðideild Raunvísindastofnunar hafa rannsóknaraðstöðu fimm kennarar úr efnafræðinámsbraut raunvísindadeildar og einn kennari úr matvæla-og næringarfræðideild Heilbrigðisvísindasviðs. Auk þeirra starfa á deildinni nokkrir sérfræðingar, nemar í rannsóknatengdu framhaldsnámi til meistara- eða doktorsprófs, rannsóknamenn og nemar sem vinna að lokaverkefnum til BS-prófs. Þau rannsóknaverkefni sem unnið er að á deildinni eru á eftirtöldum sviðum: Rannsóknir á hreinvinnslu, eiginleikum og hagnýtingu próteina, einkum ensíma, rannsóknir á sameindafræðilegum forsendum kuldaaðlögunar próteina, rannsóknir í erfðatækni og hagnýtingu hennar til ensímframleiðslu fyrir ýmsan iðnað, rannsóknir á efnaskiptum í tengslum við sjúkdóma, og rannsóknir á lyfjaefnum úr íslenskum jurtum.

Forstöðumaður: Dr. Magnús M. Kristjánsson prófessor. Nánari upplýsingar á tenglum hér til hægri.

Ágústa Guðmundsdóttir, BS, PhD
prófessor
Sími: 525 4796, Tölvupóstfang: ag@hi.is

Menntun: BS-próf í matvælafræði frá HÍ, doktorsgráða í örverufræði frá Virginíuháskóla í Charlottesville, USA.

Rannsóknir: Erfðatæknileg framleiðsla þorskensíma í gersveppum, sérsniðin ensím, einangrun próteina, náttúruleg rotvörn. Tjáning trypsina.

Hörður Filippusson, BSc, PhD
prófessor
Sími: 525 4843, Tölvupóstfang: hfil@hi.is

Menntun: BSc-próf í lífefnafræði og doktorsgráða í lífefnafræði frá Háskólanum í St Andrews, Skotlandi.

Rannsóknir: Ensímrannsóknir. Kyrrsetning ensíma. Gripgreining. Vinnsla lífefna úr vefjum og blóði sláturdýra.

Starfsmaður

Baldur Símonarson, BSc, PhD
dósent
Sími: 525 4846, Tölvupóstfang: bsim@hi.is

Menntun: BSc-próf í lífefnafræði frá Edinborgarháskóla í Skotlandi, doktorsgráða í lífefnafræði frá University of London, Englandi.

Rannsóknir: Varnir lífvera gegn oxunarálagi og stakeindum. Ensímið glútaþíónperoxídasi, eiginleikar og hreinvinnsla. Andoxunarefni. Snefilefnið selen.

Valgerður Edda Benediktsdóttir, BSc, MS
fræðimaður
Sími: 695 0895, Tölvupóstfang: eb@raunvis.hi.is

Menntun: BSc-próf í efnafræði frá Gautaborgarháskóla, MS-próf í efnafræði frá Háskóla Íslands.

Rannsóknir: Frumuhimnur í hjartavöðvafrumum, samsetning, hormónaviðtakar og himnuflekar í þeim. Áhrif omega-3 fjölómettaðra fitusýra á starfsemi frumuhimna og staðsetningu próteina í himnuflekum.

Bjarni Ásgeirsson, BSc, PhD
prófessor
Sími: 525 4805, Tölvupóstfang: bjarni@raunvis.hi.is

Menntun: BS-próf í líffræði frá HÍ, BSc-próf og doktorsgráða í lífefnafræði frá Háskólanum í Bristol, Englandi.

Rannsóknir: Kuldavirk ensím úr bakteríum og úr fiskum. Grundvöllur hvötunarvirkni, sértækni, og stöðugleiki ensíma. Frumuhimnuflekar. Próteinmengjafræði. Fitumengjafræði.

Magnús Már Kristjánsson, BS, MSc, PhD
prófessor
Sími: 525 4819, Tölvupóstfang: mmk@raunvis.hi.is

Menntun: BS-próf í matvælafræði frá HÍ, MS-próf í matvælaefnafræði frá Kaliforníuháskóla í Davis, doktorsgráða í matvælaefnafræði/lífefnafræði frá Cornell-háskóla í New York, USA.

Rannsóknir: Prótein, ensím, próteinasar, stöðugleiki próteina, hitastigsaðlögun próteina, hagnýting ensíma.

Starfsmaður
(1) | 10.1| 2011 | Hafa samband | ©2010 Lífefnafræðideild