UPPHAF LITLU ÍSALDARINNAR


Borađ í set á botni Hvítarvatns






Rannsóknir vísindamanna viđ Coloradoháskóla og Jarđvísindastofnun Háskólans, á hörfun jökla á Baffinlandi og setkjörnum úr Hvítárvatni viđ Langjökul, hafa leitt í ljós ađ kólnun á Litlu ísöldinni byrjađi snögglega og samtímis á Baffinlandi og Íslandi, á árunum 1275-1300.

Ýmsar kenningar hafa veriđ uppi um orsakir kólnunar á Litlu ísöldinni. Brennisteinssambönd í gosmekki stórra sprengigosa, sem safnast í gufuhvolf jarđar, geta valdiđ tímabundinni lćkkun á inngeislun sólar en Litla ísöldin náđi yfir mun lengra tímabil, frá 1275 fram undir aldamótin 1900. Ţví hafa flestir hallast ađ ţví ađ meginorsök langvarandi kuldaskeiđs Litlu ísaldarinnar hafi stafađ frá lćkkandi útgeislun sólar (lítilli sólblettavirkni). Litla ísöldin hófst hins vegar meira en ţremur öldum á undan sólblettalćgđinni 1645-1715, sem kennd er viđ Maunder.

Međ ţví ađ bera saman kolefnisaldursgreiningar á gróđri undan bráđnandi jökulhettu Baffinlands, viđ gögn úr hvarflögum setkjarna úr Hvítárvatni og ískjörnum úr Grćnlandsjökli hafa Gifford Miller og Áslaug Geirsdóttir ásamt samstarfsmönnum unniđ loftlagslíkön sem sýna nákvćma tímasetningu kólnunar á Litlu ísöldinni og hugsanlegar ástćđur hennar. Endurtekin eldgos á stuttum tíma urđu ţess valdandi ađ hafísmyndun óx í Norđurhöfum. Hafísmyndunin viđhélt síđan kuldatímabilinu löngu eftir ađ áhrif eldsumbrotanna höfđu fjarađ út, međ auknu endurvarpi sólgeislunar (Albedo) og kólnun andrúmslofts.

Rannsóknin á upphafi og orsökum Litlu ísaldarinnar er hluti af stćrra verkefni sem snýr m.a. ađ ţví ađ betrumbćta tímakvarđa fyrir loftslagstengd gögn frá Nútíma út frá gjóskulagatímatali og ţá sér í lagi íslensku gjóskulagatímatali.

Niđurstöđur ţessarra rannsókna sem birtar eru í tímaritinu Geophysical Research Letters hafa ţegar vakiđ mikla athygli erlendis og eru m.a. til umfjöllunar í tímaritunum Nature og Science, sjá:

http://www.agu.org/news/press/pr_archives/2012/2012-05.shtml

http://news.sciencemag.org/sciencenow/2012/01/volcanoes-indicted-for-europes-l.html

http://blogs.nature.com/news/2012/01/little-ice-age-was-caused-by-volcanism.html

http://dotearth.blogs.nytimes.com/2012/01/30/how-a-climate-nudge-can-produce-long-lasting-impacts/

http://www.bbc.co.uk/news/science-environment-16797075

http://www.colorado.edu/news/releases/2012/01/30/new-cu-led-study-may-answer-long-standing-questions-about-enigmatic-little