Norrænt rannsóknarsamvinnuverkefni með þátttöku starfsmanna
raunvísindadeildar HÍ fær stóran norskan styrk.

Rannsóknarsamvinnuverkefni varðandi orkueiginleika efnis og andefnis, atóma og sameinda með þátttöku Norðmanna, Dana, Íslendinga sem og CERN fékk styrk frá Norska ríkinu að upphæð 7 M NKr (155 M Í Kr). Styrkurinn er veittur til grunnrannsókna á skammtafræði og stjórnun svonefndra orkuríkra Rydberg ástanda atóma, sameinda og efnis. Orkurík Rydberg ástönd efnis hafa eiginleika sem geta verið verulega frábrugðnir því sem gildir um efni við venjulegar aðstæður, sem býður upp á fjölbreytta nýja notkunarmöguleika efnis. Umræddur styrkur er einkum ætlaður til að standa straum af kostnaði við rannsóknarþátt norsku samstarfsaðilanna í samstarfsnetinu sem og til að styrkja tengsl innan netsins. Framlag íslensku samstarfsaðilanna er í höndum prófessors Ágústs Kvarans, eðlisefnafræðings og samstarfsmanna hans hérlendis sem leggja stund á tilraunarannsóknir á eiginleikum orkuríkra sameinda og sundrun efnis með háorku lasergeislum 1-2).

  1. sjá:
    http: //www3.hi.is/~agust/rannsoknir/rempi/photoruptures/photoruptures.htm
  2. sjá ýmsar myndir frá Raunvísindastofnun HÍ:

    http: //notendur.hi.is/agust/rannsoknir/rempi/lab.htm

    http: //notendur.hi.is/agust/ymisl/myndir/rh28104/rh29104.htm


Ágúst Kvaran, 25.01.10